Fyrir vefeigendur, stjórnendur og þróunarteymi

Er vefurinn þinn aðgengilegur?

Sja11y skimar vefinn þinn, gefur einkunn út frá WCAG 2.2 stöðlunum og skilar ábendingum um það sem þarf að lagfæra á mannamáli. Sja11y sameinar sjálfvirka skimun og gervigreindaryfirferð og skilar niðurstöðum sem vefteymið þitt getur strax brugðist við.

Handvirk úttekt hjá ráðgjafa kostar 300.000+ kr. Sja11y fylgist með þér allt árið fyrir brot af því.

Áskriftarleiðir

Byrjaðu frítt. Uppfærðu þegar þú þarft skýrsluna, eftirlitið og staðfestinguna.

Aðgengisskimun

Sjáðu hvar þú stendur

Frítt
Skima vefinn frítt
  • Skima allt að 3 síður
  • Einkunn og samantekt
  • Ábendingar um það sem betur má fara
Vinsælast

Vefur

Tryggðu að vefurinn þinn sé aðgengilegur

73.500kr./ári
greitt sem €490 ≈ 6.100 kr./mán · sparaðu 14.700 kr.
Velja þessa leið
  • 1 lén og 1 úttekt á mánuði
  • Full skimun - allt að 50 síður
  • Skýrsla með niðurstöðum
  • Leiðbeiningar og tillögur að lagfæringum þar sem við á

Fyrirtæki

Fyrir teymi og fyrirtæki með marga vefi.

148.500kr./ári
greitt sem €990 ≈ 12.400 kr./mán · sparaðu 29.700 kr.
Velja þessa leið
  • Allt að 5 lén og mánaðarleg úttekt fyrir hvert
  • Full skimun - allt að 150 síður
  • 3 notendur
  • Allt í áskrift fyrir vef

Þarftu bara eina úttekt?

Kauptu eina ítarlega úttekt — full skimun, skýrsla með niðurstöðum, leiðbeiningar og tillögur að lagfæringum. Engin áskrift — dregst frá áskrift fyrir vef ef þú uppfærir innan 30 daga.

22.400 kr.
eingreiðsla · greitt sem €149
Kaupa staka úttekt

Af hverju má þetta ekki bíða

Ný íslensk aðgengislög og Evrópska aðgengistilskipunin (EAA) gera kröfu um að vefsetur og smáforrit uppfylli aðgengiskröfur. Ábyrgðin liggur hjá eiganda vefsins og stjórnendum verkefna.

Tölurnar hér að neðan eru hámarkssektir eftir löndum, ekki dæmigerðar sektir. Heimildir: innleiðingar EAA (DE, FR).

€100.000
Þýskaland — hámark á hvert brot
€250.000
Frakkland — hámarkssekt
€25.000
Frakkland — vantar aðgengisyfirlýsingu
5%
Ítalía — af veltu, stór fyrirtæki

Spurningar og svör

Hvernig virkar þjónustan?
  1. Sjálfvirk skimun

    Viðurkennt aðgengisprófunartól skimar kerfisbundið allt vefsvæðið og skilar skýrum niðurstöðum fyrir þróunarteymið.

  2. Gervigreindaryfirferð

    Gervigreind metur samhengi og upplifun sem sjálfvirk tól ná ekki, og forgangsraðar niðurstöðum.

  3. Niðurstöður

    Skýrsla sem auðveldar þróunarteymum að gera nauðsynlegar lagfæringar til að tryggja að vefsvæði séu aðgengileg öllum.

Hvað telst ein „úttekt“?
Ein úttekt skimar vefinn þinn upp að síðumörkum áskriftarinnar, keyrir sjálfvirk WCAG-próf á hverri síðu, bætir við gervigreindaryfirferð og skilar einni skýrslu. Skýrslan inniheldur upplýsingar um þau atriði sem þarfnast skoðunar ásamt tillögum að lagfæringum þegar við á.
Af hverju er verðið líka sýnt í evrum?
Greiðslugáttin okkar vinnur í evrum, þess vegna er evruupphæðin sýnd. Krónutalan tekur mið af gengi dagsins — kortið þitt er rukkað um evruupphæðina sem sést. Virðisaukaskattur er reiknaður í greiðsluferlinu.
Nær þetta öllu sem ég þarf að laga?
Sjálfvirk próf finna áreiðanlega um 40–50% af WCAG-atriðum — þau sem vélar geta greint. Til viðbótar framkvæmir Sja11y gervigreindaryfirferð, metur samhengi og upplifun sem sjálfvirk tól ná ekki, og forgangsraðar niðurstöðum. Þjónustan er gagnlegt innlegg í þróun en kemur ekki í staðinn fyrir fullgilda handvirka úttekt eða notendaprófanir.
Get ég sagt upp hvenær sem er?
Já. Áskriftir eru mánaðarlegar eða árlegar og þú getur sagt upp í stjórnborðinu hvenær sem er — þú heldur aðgangi út tímabilið sem þú hefur greitt fyrir.
Hvað ef úttektin finnur ekkert gagnlegt?
Keyrðu fulla úttekt og ef hún finnur ekki raunveruleg, lagfæranleg atriði á vefnum þínum endurgreiðum við þér. Í reynd finnur hún alltaf eitthvað sem er þess virði að laga.